FJARÞJÁLFUN
FJARÞJÁLFUN
UMMÆLI
UMMÆLI
Ég hef verið að taka líkamann í gegn hjá Röggu Nagla undanfarna tvo mánuði.
Einhver sagði að það væri aldrei of seint og það er mikið rétt . Mig hefur langað lengi að vera með en gat það ekki. Það sem stöðvaði mig var ýmislegt. Hugurinn fyrir það fyrsta var helsjúkur í mat
og ég notaði mat við allar athafnir og þekktur fyrir að borða mikið, það var mitt aðalsmerki.
Mig langaði alltaf undir niðri að losna út en ég fann engar leiðir. Staðan var orðin sú að ég komst rétt svo heim eftir vinnu upp í sófa til þess að reyna að safna orku til þess að lifa af næsta dag.
Ég var orðinn 124 kg, hundóánægður og alltaf að mistakast að létta mig. Ég var kominn með of háan blóðþrýsting og fór því til sérfræðings þar sem ég fékk töflur sem mér hefur alltaf verið illa við. Ég gerði ekkert í mínum málum því þarna var ég búinn að gefast upp og ætlaði bara að vera bolla.
Þrem mánuðum seinna voru mér rétt fleiri lyf því mér hafði versnað.
Við þær fréttir var mér nokkuð brugðið en ég fór út með þau skilaboð að ég gæti sjálfur bætt ástand mitt með aukinni hreyfingu og betra mataræði.
Ég varð ringlaður og örvæntingarfullur því ég hafði marga hildi háð í að léttast og ekkert gengið. Mér var nú samt hugsað til fólks sem ég hafði heyrt af eða lesið um sem hafði náð tökum á sínu lífi með aukinni hreyfingu og breyttu mataræði.
Við það hugsaði ég að ég gæti allt eins fundið lausn á mínu verkefni eins og þetta fólk.
Vandi minn var einna helstur að ég vissi ekkert hvernig ég ætti að borða og hvað ég mætti borða. Ég náði mér í hlaupaprógramm og byrjaði að hlaupa en vigtin fór ekkert niður.
Þegar þarna var komið við sögu var konan mín að skoða möguleikana í hreyfingu, við höfðum í gegnum tíðina verið iðin við að ýta á hvort annað í ruslfæðinu. Hún þurfti ekki annað að segja orðið súkk... og þá sást í iljarnar á mér að ná í gotterí.
Konan hafði lesið bloggið hjá Röggu Nagla um hríð og ákvað að sækja um í fjarþjálfun fyrir okkur bæði. Ég var forvitinn þegar konan las bloggið hennar fyrir mig. Þar eru uppskriftir og góð ráð um hreyfingu og hve rétt hugarfar er mikilvægt. Ég fékk góða tilfinningu um leið og ég byrjaði á prógramminu, enginn kvíði heldur fann ég fljótlega að þetta var að virka, ég var laus við sykursveiflurnar (Geirmundur hefði verið stoltur af þeim).
Í dag hef ég náð hellings árangri og er akkúrat á réttri leið, það er enn langt í land en ég er búinn að léttast mikið og orðinn miklu sterkari.
Ragga vaktar mig og gefur mér ráð og ég þarf ekki að hugsa um neitt nema að fylgja prógramminu. Ég hlusta á líkamann, en ég skildi aldrei þegar fólk talaði um það, því að minn gafst upp á að tala við mig því að ég heyrði ekki.
Þegar ég dett í neikvæða hugsun þá eflist ég meira: “áfram með smjörið ekkert væl”. Hugurinn er svona, stundum er ég klár að fara og hress, stundum er ég í litlu stuði en alltaf fer ég í ræktina og alltaf jafn ánægður á eftir.
Árangurinn er minn. Það hefur engin áhrif á hann nema ég sjálfur. Það sem ég legg í hann fæ ég. Ég er allur annar og er að gera aðra hluti í dag en áður, ég hugsa öðruvísi en áður.
Málið er einfalt gerðu þitt fyrir þig eins vel og þú getur með það sem þú hefur.
Þorsteinn Lýðsson, 40 ára
1. Þér hefur tekist að snúa minni hugsun varðandi matarræði í 180 gráður.
Ég á mun heilbrigðara samband við mat núna. Fyrst, þegar ég fékk matarplanið frá Röggu, fékk ég nett sjokk vegna magnsins en ákvað að gefa þessu séns. Eftir fyrstu tvo dagana var þetta fast og slegið! Mér leið miklu betur yfir daginn, var aldrei svöng. Svo ótrúlega margt sem ég hafði greinilega ekki hugmynd um varðandi mataræðið. Svo margar fæðutegundir sem ég hafði verið að sneiða framhjá áður.
2. Þér hefur tekist að snúa minni hugsun varðandi árangur og æfingar í 180 gráður.
Árangur er eitthvað sem tekur tíma, mikla vinnu, staðfestu og vilja. Halda sig við planið og fyrr en síðar mun árangurinn koma í ljós. Nú hef ég stúderað matarplanið, farið eftir því í einu og öllu, tekið æfingarnar með trompi og viti menn, buxurnar eru orðnar víðari. Nú er ég að borða töluvert meira en ég gerði áður, brenna minna en er samt í "fitutapsfasa". Gæti þetta verið meira bjútifúl? Æfingarnar eru líka svo skemmtilegar.
3. Stuðningurinn og aðhaldið frá þér gerir gæfumuninn
Stuðningurinn og aðhaldið frá þér fær 12 stjörnur af 10 mögulegum. Þú ert virkilega fljót að svara öllum spurningum og svarar þeim mjög vel. Þú ert rosalega dugleg að kommenta á matar og æfingaplan, spyrja spurninga sjálf ef þú hefur efasemdir og það er svakalegur stuðningur. Hrósar manni óspart, sem er ekkert annað en “boost” fyrir egóið og áfergjuna í að halda áfram og gera betur. Þú gerir þetta mjög skemmtilegt.
Þú skefur ekki af hlutunum eða fegrar. Þetta er ekki auðvelt, árangurinn kemur með tímanum, ef þú heldur þig við æfinga- og matarplan, tuð, sjálfsvorkunn og gremja kemur manni ekkert áfram. Það sést líka svo vel hvað þú hefur mikinn áhuga og metnað fyrir því sem þú gerir, bæði á andlega og líkamlega sviðinu, að maður getur ekki annað en sogast með. Þú horfir á þetta ferli með svo heilbrigðri hugsun. Fara í ræktina fyrir almenna heilsu og hreysti - minnkun/mjókkun er bónus, ef þú ert í þeim gírnum!
Þú hefur algerlega kennt mér að hugsa þetta ferli upp á nýtt út frá mun heilbrigðara sjónarhorni. Fyrir það get ég ekki þakkað þér nóg. Þú ert ekkert nema snillingur!
Elín Helga Egilsdóttir 25 ára tölvunarfræðingur.
Er sátt og fíla það í botn að vera lærisveinn hjá þér. Líka svo frábært að taka mataræðið í gegn
og borða mat en ekki bara fæðubótarefni. Einn ágætis einkaþjálfari sagði við mig þegar ég var
hjá honum að ef ég vildi ná árangri strax ætti ég að borða myoplex eða hörbó í allar máltíðir
nema í hádegismatinn og kvöldmatinn, þá ætti ég að borða kjúkling. Ekki séns fyrir mig því mér
finnst of gott að borða. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir mig, þetta er það besta sem ég hef
gert fyrir sjálfa mig í langan tíma. Og ég tala nú ekki um þessa heilbrigðu sýn sem ég hef öðlast
á mat.
Lilja Rós Benediktsdóttir, 27 ára.
Mér finnst þetta ganga mjög vel. Mjög gott að fá svona fljótt komment á það sem maður er að gera, það heldur manni á mottunni. Æfingarnar eru mjög fínar og gaman að gera eitthvað sem ég er ekki vön að gera.
Arna Lára, 33 ára
Líður betur að öllu leyti bæði á sál og líkama. Hlakka til að fara á æfingar, þó svo þær séu oft mjög erfiðar og dettur ekki í hug að sleppa þeim. Ég hef grennst nokkuð en ég er ekki eins einblínt á það eins og ég hef svo oft verið þegar ég hef farið í "átak" sem þetta er ekki, þar sem þetta er sá lífstíll sem ég vill hafa að leiðarljósi.
Gerður Björk, 32 ára
Er vöðvastæltari og grennri og sé mikinn árangur. Meiri árangur en ég hef áður séð eftir aðeins rúman mánuð. Finnst ég vera harðari og í góðu formi. Finnst ég hafa náð verulegum árangri á ekki lengri tíma. Síðuspikið minnkar jafnt og þétt og mér finnst ég allur stinnari. Meiri árangur heldur en ég átti von á eiginlega, a.m.k. hvað vöðvauppbyggingu varðar.
Karlmaður, 29 ára (vill ekki láta nafns síns getið)