FJARÞJÁLFUN
FJARÞJÁLFUN
RAGGA NAGLI
RAGGA NAGLI
Ég heiti fullu nafni Ragnhildur Þórðardóttir og viðurkenni fúslega að ég er heilsufíkill. Líkamsrækt og hollt mataræði eru mínar ær og kýr og ég þrífst ekki nema að sinna þessari fíkn.
Ég er með B.A í sálfræði frá HÍ (2004), einkaþjálfararéttindi (2004) frá ACE (American Council on Exercise) og M.Sc í Heilsusálfræði (Health Psychology) frá University of Surrey (2006).
Ég hef margra ára reynslu af þjálfun og ráðgjöf og hef leiðbeint hundruðum í átt að betra lífi og líkama.
Ég spái mikið í mátt hugans þegar kemur að því að stunda heilbrigt líferni. Að mínu mati er það sjálfsagðara en tannburstun. Ég nenni engu kjaftæði og þess vegna eru afsakanir, kvartanir og væl ekki í boði í minni fjarþjálfun. “Hver ber ábyrgð á eigin árangri” er mitt mottó, því duglegri sem þú ert að fylgja planinu frá mér, því meiri verður árangurinn, svo einfalt er það.