FJARÞJÁLFUN
GREINAR
GREINAR
Markmið og næring
Stærstu mistökin sem flestir gera í leit sinni að betri líkama - vöðvauppbygging eða fitutap - er að næringarplanið er ekki í takt við markmiðið.
Ef þú vilt missa fitu þá þarftu að borða þannig að þú missir fitu. Ef þú vilt byggja upp vöðva þá þarftuað borða svo líkaminn leyfi vöðvauppbyggingu. Þetta hljómar rökrétt ekki satt? Líttu í kringum þig í ræktinni. Hversu margir breytast í útliti frá mánuði til mánaðar eða frá ári til árs? Ekki margir. Það er ekki vegna lélegrar mætingar eða metnaðarleysis í ræktinni, því sama fólkið mætir viku eftir viku og er virkilega að taka á því. Það rífur í járnið, gerir sínar brennsluæfingar, en einhverra hluta vegna breytist útlitið lítið sem ekkert. Afhverju? Næringin!! Mataræðið er ekki í takt við markmið þeirra.
Ef við myndum spyrja þetta fólk hvert markmið þeirra sé, er líklegasta svarið að verða massaðri... og grennri. Það er það sem við flest viljum en vandamálið er að ætla að gera hvoru tveggja á sama tíma.
Þetta eru engin geimvísindi. Til þess að missa líkamsfitu þarftu að vera í hitaeiningaþurrð í lok dags. Þú getur gert það a) gegnum mataræðið (neyta færri hitaeininga en líkaminn þarf til að viðhalda núverandi þyngd), b) með aukinni hreyfingu, eða c) blöndu af hvoru tveggja – c) er ákjósanlegasti kosturinn.
Berum þetta saman við að byggja upp vöðvamassa, þú þarft að vera í orkuofgnótt til að byggja upp kjöt.
Maður hlýtur þá að spyrja sig, hvernig geturðu verið í hitaeiningaþurrð og hitaeiningaofgnótt á sama tíma? Það er ekki hægt. Hér er um tvær mismunandi aðstæður að ræða sem geta ekki farið saman.
Líkaminn nær ekki í orku úr fituforðanum ef hann fær ofgnótt hitaeininga. Á sama hátt, þegar þú ert í hitaeiningaþurrð þá er líkaminn á fullu að reyna að lifa af. Hann fær ekki nóg af hitaeiningum til að viðhalda núverandi þyngd, þess vegna nær hann í orku úr fituforðanum til að viðhalda virkum vefjum og annarri líkamsstarfsemi.
Er líklegt í þessu ástandi að líkaminn bæti við orkufrekum vef eins og vöðvum sem þarf að stækka OG halda við – þegar hann hefur ekki einu sinni næga orku til að viðhalda núverandi þyngd? Það er harla ólíklegt.
Að bæta við stærð á líkamann er gríðarlega orkufrekt ferli og er í hrópandi mótsögn við markmið flestra: byggja upp vöðva og missa fitu samtímis.
En það þýðir samt ekki að enginn geti nokkurn tíma misst fitu og byggt upp kjöt á sama tíma - eða það sem við köllum "endursamsetning líkamans". Langlíklegasta fólkið til þess eru algjörir byrjendur, þeir sem eru að byrja aftur eftir hlé, eða þeir sem eru nýir í skilvirkri þjálfun.
Ef þú vilt ná hámarks árangri í hvora áttina sem er - fitutap eða vöðvauppbygging, þá farnast þér mun betur ef mataræðið er í takt við markmiðið. Ef þú vilt lýsið burt þarftu að vera í hitaeiningaþurrð, en ef þú vilt fá gæðakjöt á beininþarftu að borða...MIKIÐ.
Ef þú ert ekki að stækka þá ertu ekki að borða nóg svo einfalt er það. Stærsta ástæða þess að fólk stækkar ekki né styrkist er einfaldlega vegna þess að það innbyrðir ekki næga orku til að viðhalda þyngd og styðja við vöxt á nýjum vöðvavef.
Horfðu í spegilinn og spáðu í hvað þú þarft að gera fyrst. Viltu bæta á þig kjöti með lágmarksfitsöfnun og skera síðan niður meðan þú viðheldur vöðvunum? Eða ertu með auka fitu sem þú vilt losna við? Þá geturðu skellt þér beint í fitutaps-prógramm. Óháð því hvert markmiðið er þá eru skilaboðin að lyftingar, brennsluæfingar allt sem þú gerir í ræktinni alltaf í öðru sæti. Mataræðið er það sem skiptir öllu máli þegar kemur að því að ná markmiðum.