FJARÞJÁLFUN
FJARÞJÁLFUN
GREINAR
GREINAR
Hugarfar í niðurskurði.
Megrun. Pældu aðeins í þessu hugtaki. Hvað kemur upp í hugann? Svengd, frústrering, pirringur, langanir? Það eru þessar neikvæðu hugsanir og viðbrögð sem eru ástæðan fyrir ömurlegri upplifun á fitutapstilraunum
Niðurskurður (Naglinn þolir ekki hugtakið Megrun) snýst ekki bara um mat, eða skort á mat. Niðurskurður er ferðalag sem þú leggur upp í á eigin spýtur. Því miður horfa alltof margir á ranga hluti og velta fyrir sér af hverju erfiðir dagar verða allt í einu normið.
Telurðu þig hafa stjórn á hugsunum þínum? Þú ein(n) getur breytt niðurskurðartímabili frá því að vera hrein hörmungarferð yfir í jákvæða og þægilega upplifun.
Hugurinn er eins og svampur og sýgur í sig neikvæðar upplifanir frá fyrri tilraunum til fitutaps. Og hvernig þú hugsar um hlutina hefur áhrif á hvernig þú upplifir þá. Þú getur skapað þitt eigið hugarfar gagnvart hlutunum. Hvort viðhorf þitt gagnvart niðurskurðinum er jákvætt eða neikvætt er undir þér komið, ekki vinunum, fjölskyldunni eða þjálfaranum þínum.
Er þetta erfitt? Ójá, þetta er erfitt. Ef fitutap væri eitthvað sem fólk gæti gert á kantinum með annarri þá væri allir helmassaköttaðir og amma þeirra líka. Það er hins vegar ekki raunin. Það er vegna þess að fólk einblínir alltof mikið á erfiðleikana í stað þess að takast á við þá.
Þú getur fundið lausnir við erfiðleikum og snúið neikvæðum aðstæðum upp í jákvætt lærdómsferli. Brann eggjahvítupannsan við? Þá er bara að skella í aðra og passa hitann í þetta skiptið. Finnst þér kjúklingur viðbjóður? Í guðs bænum ekki pína eitthvað ofan í þig. Það er bara ávísun á uppgjöf. Fáðu þér þá fisk, nautakjöt, kalkún, eggjahvítur, folaldakjöt.
Nú svo geturðu líka bara haldið áfram að ströggla og grenjað yfir hvað þetta sé erfitt og hvað þú eigir bágt. Spurðu sjálfa(n) þig af hverju þú ert að skera niður. Það er enginn sem sendir þér bréf frá Hagstofunni sem segir "Nú ert þú komin(n) í megrun... sorrý". Þú tekur þessa ákvörðun algjörlega upp á eigin spýtur. Þú ákveður á hverjum morgni að halda áfram. Ekkert í veröldinni getur stoppað þig, eða sett hindranir í veg fyrir þig nema að þú leyfir það. Mundu að aðeins þú hefur valdið til að halda þínu striki og finna lausnir til að sigla fram hjá hindrunum.
Þú þarft að hafa sjálfstraust og trú á því sem þú ert að gera og trú að þú getir gert það. Ef þú trúir ekki á sjálfa(n) þig eða það sem þú ert að gera, hver mun gera það? Ef þú trúir að niðurskurðurinn misheppnist hjá þér þá mun það líka gerast. Ef þú trúir að þú munir ná markmiðum þínum þá muntu ná þeim. Hljómar voða einfalt og er það líka. Að trúa ekki á sjálfan sig er meginástæða þess að fólk nær ekki markmiðum sínum í lífinu, ekki bara líkamlegum markmiðum. Jafnvel þó þú hafir allan metnað undir sólinni þá eru ætlanir ekki það sama og aðgerðir. Skortur á sjálfstrausti mun setja stein í götu þína og þú munt ströggla því hugurinn stjórnar gerðum þínum Formúlan fyrir árangri er einföld: GERÐU HLUTINA!!
Sjálfstraust og geta til að ná markmiðum býr í okkur öllum. Ef Naglinn og allir hinir geta þraukað niðurskurð þá getur þú það líka. Það er ekkert sem heldur aftur af þér nema þú sjálf(ur). Þú þarft að passa að láta þetta ferli ekki stjórna lífi þínu og hugsunum.
Þú stjórnar niðurskurðinum en ekki öfugt.
Hentu út öllum neikvæðum hugsunum og skapaðu jákvæða mynd í hausnum um hver endastöðin er á þessu ferðalagi. Er þetta þess virði?
Er viljinn til að breytast yfirsterkari viljanum til að hjakka áfram í sama farinu?
Hvort þú nærð árangri hangir saman við hve einbeitt(ur) og jákvæð(ur) þú ert. Fókus á markmiðin, jákvætt hugarfar, sterkur vilji til að breytast, skynsamlegar aðferðir og skuldbinding við verkefnið munu koma þér í gegnum allar aðstæður.