FJARÞJÁLFUN

GREINAR

GREINAR


Fiskur án reiðhjóls


Naglinn hefur reynt að halda í sér bölsótinu en getur ekki orða bundist lengur. Netmiðlarnir gubba útúr sér heilu dálkunum með pervertískum áherslum á megrun og kílóatapi beindum að kvenpeningnum.  Töfralausnir og ráðleggingar frá hinum og þessum kroppatemjurum sem hafa þann starfa að tálga grindhoraðar Hollívúdd stjörnur svo þær leysist upp í frumeindir sínar.


Konum er kennt að sú sem borðar minnst, hún vinnur og því færri máltíðir yfir daginn því betra. Alls ekki borða eftir kvöldmat því það breytist í fitu á núll einni og aðeins handfylli af matarörðum skal troðið í grímuna í hverri máltíð… hey Victoria Beckham gerir það og þá hlýtur það að vera sniðugt!! Jafnvel skal mauka þessar örfáu leyfilegur kaloríur niður í barnamatskrúsir og borða aðeins eina slíka, nú eða blanda dufti í vatn í eins mörgum máltíðum og þú kemst yfir (og því meira græðir framleiðandinn).
“Svöng?? Orkulaus?? Girtu þig í brók kona.... stjörnurnar þola hungrið og sjáðu hvað þær eru flottar”
Það er troðið í hausinn á konum að matur sé Satans og ellefta boðorðið er: Þér skuluð samviskubit hafa eftir hvern snæðing sem ekki er kálblað og fiðurfé.


Þegar meðalJónan vaknar á morgnana er hún uppfull af metnaði fyrir nýjan dag, nú skal sko
skuluð samviskubit hafa eftir hvern snæðing. eira til eftir hvern konse to othersctvie and elastic manner, nú  farið eftir þessum stjörnuráðum og vera í megrun eins og flottu tútturnar í glanssneplunum.  Einmana hrökkbrauð í morgunmat, hálf aumingjaleg skyrdós í hádegi með nokkrum kálblöðum og ekki má gleyma dítox söfunum…. “svo bara þamba vatn, vatn, vatn.. koma svo!!!“ En svo þegar líður á daginn fer heldur að kárna gamanið, maginn ósáttur við að vera hlunnfarinn um fleiri hundruð kaloríur og gargar á orku með garnagauli og hungri.  Heilinn tekur þátt í gleðinni og þrengir inn hugsunum og löngunum í súkkulaði, kex, snakk… allt sem heitir skjót orka núna núna!! fær að svamla um í klámfengnum stellingum í gráa efninu. Líkaminn er nefnilega lúmskur fjandi, hann skal og vill fá sitt bensín sama í hvaða mynd það rennur niður vélindað

Um fimmleytið dettur viljastyrkurinn örendur niður hungrinu að bráð og hendurnar tæta upp kexpakkann eins og vannærðar dúfur á brauðhleif.

En strax í kjölfar á kexáts hefst ólympískt niðurrif á sjálfinu yfir að geta ekki haldið út “megrun” eins og hinar stjörnurnar og lofað yfirbót með sautján Maríubænum og svipuhöggum á eigið bak.  “Bara hrökkbrauð og ein barnamatskrukka í fyrramálið”


Þessi hegðun skapar vítahring af hringspóli í sömu hjólförunum ár eftir ár með handónýtt brennslukerfi, missa tíu en bæta á sig fimmtán eftir hvern ömurlega kúrinn á eftir öðrum.  “Ég skil ekki af hverju barnamatskúrinn virkar ekki á mig??” Sjálfsmyndin hefur yfirgefið bygginguna og dundar sér ofan í Gustavsberginu með blöðum af Lambi pappír.  “I’m a loser baby….”
Til þess að forðast þennan forarpytt þarf að kenna konum að hætta þessari endalausu megrunaráráttu, byrja að lyfta lóðum og nærast eins og manneskja, ekki eins og kroppaður kjölturakki.  Til þess að eiga heilbrigðan skrokk þarf að fóðra vöðvana frekar en að svelta burt fituna með ræfilslegu kroppi.  Reglulegar máltíðir, fimm til sex sinnum yfir daginn… og já líka fyrir svefn… og öll dýrin í skóginum prótín, kolvetni og fita, eru vinir okkar. Þannig hödum við blóðsykri stöðugum og byggjum upp gæðakjöt samhliða fitutapi sé það markmiðið.

Oft kemur fram kvíðaröskun yfir að borða sex sinnum á dag þar sem skilaboðin í gegnum tíðina hafa verið að þú eigir að sleikja sultarrimina viljirðu missa mör.  “Ó MÆ GOD… flókin kolvetni… eru þau ekki afkvæmi Kölska?? Þetta eru alltof stórir skammtar, nú hlýt ég að blása út á einni nóttu eins og gasblaðra á sautjánda júní .” Misskilningur á misskilning ofan…þú þarft að vinna með líkamanum, en ekki misþyrma honum…. því hann hefnir sín..ÓJÁ… hann hefnir sín grimmt með vöðvaniðurrifi, lækkaðri grunnbrennslu og óskilvirkri líkamsstarfssemi.