FJARÞJÁLFUN
FJARÞJÁLFUN
FJARÞJÁLFUN
Fjarþjálfun
Í fjarþjálfun er tæknin nýtt til hins ítrasta. Öll samskipti fara fram í gegnum netið: tölvupóst og Google. Þetta fyrirkomulag veitir jafn mikið aðhald og venjuleg einkaþjálfun en er töluvert ódýrara.
Þjálfunin er einstaklingsmiðuð þar sem þú sem viðskiptavinur færð sérsniðið æfinga- og matarplan byggt á markmiðum, matarvenjum og þjálfunarsögu þinni. Skýringar, myndir og myndbönd af æfingum fylgja hverju plani.
Það má síðan æfa hvar og hvenær sem er.
Mikil áhersla er á persónulegt og reglulegt samband við viðskiptavininn og með slíkri eftirfylgni og aðhaldi er árangur hámarkaður.
Í upphafi fyllir þú út spurningalista um þjálfunarsögu, markmið og mataræði og sendir mér myndir af þér á bikiní/stuttbuxum. Hafirðu spurningar um fæðubótarefni, vítamín eða annað svara ég
þeim, og við förum yfir hvað hentar þér og þínum markmiðum.
Á tveggja vikna fresti vigtarðu þig og tekur ummálsmælingar og á
6-8 vikna fresti sendirðu myndir, þannig getum við betur
fylgst með árangrinum. Samhliða mælingum fyllirðu út endurgjöf til
mín um hvernig þér finnist ganga á planinu, hvort árangur sé að
skila sér o.s.frv .
Þú færð aðgang að sameiginlegu skjali í Google þar sem þú
fyllir út matardagbók daglega sem er reglulega yfirfarin með mínum
athugasemdum.
Til að fylgjast með árangri í æfingum heldur þú æfingadagbók sem
farið er yfir vikulega.
Rík áhersla er á persónulegt, reglulegt og gott samband milli okkar.
Vakni spurningar eða vangaveltur um hvað sem er, hvenær sem
er, má alltaf senda tölvupóst sem er svarað eins fljótt og kostur er.
Verðskrá:
Verð: 15.900kr fyrir 4 vikur
ATHUGIÐ!
Fullbókað er á biðlista í fjarþjálfun í nóvember, desember
og janúar 2012.
Ekki er tekið við fleiri skráningum á biðlista í bili.