FJARÞJÁLFUN
GREINAR
GREINAR
Bölsót yfir vigtinni - ekki fyrir viðkvæma
Af hverju skiptir líkamsþyngd þig svona miklu máli?
Hvað segir líkamsþyngd þér? Hún segir þér hvað þú ert þung(ur).
Hver veit hvað þú ert þung(ur)? Þú! Öllum öðrum er alveg sama hvað þú ert þung(ur).
Hver eru markmiðin þegar kemur að þjálfun og mataræði? Í flestum tilfellum er það fitutap… eða er það bara þyngdartap. Þetta tvennt er ekki það sama, og það þarf að borast inn í heilann á fólki svo það geti hætt að grenja í hvert skipti sem það stígur upp á hina ógnvænlegu vigt.
Hjá sumum er það eina sem skiptir máli í lífinu að sjá lægri tölu á vigtinni, alveg sama hvaðan þyngdartapið kemur. Alveg sama þó þú lítir nákvæmlega eins út.
Ef þér væri skítsama hvaðan þyngdartapið kemur þá hlýtur það að vera í góðu lagi að samhliða lýsinu fjúki vöðvarnir líka, sem þú eyddir blóði, svita og tárum til að byggja upp. Bara svo lengi sem helv%$# vigtin fari niður ekki satt??
Neeeiii….Þú hlýtur að vilja fókusa á FITUtap ekki ÞYNGDARtap. Hvað segir vigtin þér? Hún segir þér eingöngu hvað þú vegur í það skiptið sem þú drattast upp á hana. Hún segir þér ekkert um samsetningu líkamans, líkamsfitu, vöðvavef eða nokkuð annað.
Hjá sumu fólki er sú tala sem poppar á skjáinn mikilvægari en Icesave samningurinn. Af hverju??? Þetta skilur Naglinn ekki.
Það veit enginn hvað þú ert þung(ur), talan verður ekki brennimerkt á ennið á þér eftir hverja vigtun. Hvað notar fólk til að meta útlit þitt? Samsetningu líkamans - vöðvar, líkamsfita o.s.frv-EKKI þyngdina þína. Fólk veit hvort þú sért í formi eða ekki, ef þú lítur vel út eða ekki út frá…tja út frá því hvernig þú lítur út
Segjum að þú missir 2 kg af fitu. Jibbííí
Segjum að þú bætir á þig 2 kg af vöðvum. Það er rosalegur árangur.
En ó nei!!! Talan á vigtinni er sú sama. Nú hefst grátur og gnístran tanna og allt ómögulegt.
Þú ert “loser baby, so why don’t you kill me”
Eða hvað?? Það sem virkar eins og enginn árangur á vigtinni er samt munur á útlitinu um heil 5 kg. Er það ekki annars markmiðið með æfingunum? Að LÍTA betur út?
Mittið er mjórra, mjaðmirnar hafa minnkað, lærin hafa hopað, fötin passa betur, vinir og fjölskylda hrósa þér. En vigtin hefur ekkert haggast…hhhmmm…enginn árangur í þínum huga af því að einhver heimskuleg tala sem gubbast út úr vigtinni segir að þú hafir ekki náð neinum árangri.
Komm on!!! Er ekki í lagi?? Auðvitað hefurðu náð árangri, og það helling.
Ef mælingarnar eru að fara niður þá ertu að missa fitu.
Ef þú ert minni um þig, fötin passa betur, spegilmyndin er ásættanlegri, og fólk að hrósa þér þá ertu að missa FITU. Fita er þyngd, ef þú ert að missa fitu þá ertu að missa þyngd. Ef þú ert ekki að missa þyngd samkvæmt vigtinni þá ertu að bæta einhverju á þig til að vega upp á móti fitutapinu. Hvað getur það eiginlega verið?? Gætu það verið vöðvar kannski eftir allar lyftingarnar?
Ertu að fara í gegnum hið yndislega ferli þar sem fitutap og vöðvabygging gerist samtímis: það er auðveldara að komast inn í Vatíkanið í mínípilsi en að komast í þetta ferli, og ef þú ert þar í guðs bænum njóttu þess!
Uppbygging vöðva (þyngd) er semsagt að vega á móti fitutapinu (þyngd). Er það ekki geggjað??
Hvað mótar útlit líkamans? Fitutap og vöðvauppbygging. EKKI bara þyngdartap til þess eins að sjá lægri tölu á vigtinni.
Hættu að tæta hár þitt af bræði ofan á vigtinni og byrjaðu að horfa á merki um að líkaminn líti betur út: mælingar, fituprósentu klípur, hvernig fötin passa, aukning í styrk, hrós frá fólki o.s.frv.
Er þetta skilið?? Ókei...gott!!